Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18255
Í ritgerðinni er leitast við að svara því hvort hægt sé að framleiða löggæslu á markaði á hagkvæmari máta en undir því fyrirkomulagi ríkisreksturs. Í upphafi eru ríkjandi kenningar hefðbundinnar rekstrarhagfræði kynntar, sem helst snerta efnið. Þetta eru kenningar um ytri-áhrif, samgæði og laumufarþegavandann. Einnig verða kynnt önnur vandamál um framleiðslu löggæslu, s.s. stærðarhagkvæmni og mótrök Nozick. Þar á eftir eru kenningar austurríska skólans í hagfræði um hagkvæmni kynntar og notaðar til þess að gagnrýna og greina vandamál hefðbundinnar rekstrarhagfræði um ytri-áhrif, samgæði og laumufarþega. Auk þess er öðruvísi nálgun þeirra notuð til þess að útskýra markaðsferlið á annan hátt en hefðbundin rekstrarhagfræði gerir. Þannig er bent á mikilvægi upplýsingaflæðis og samhæfingar á markaði til þess að stuðla að hagkvæmni. Ríkisrekstur er gagnrýndur í þessu ljósi. Loks eru raunveruleg dæmi um markaðslausnir á sviði löggæslu og öryggis kynnt og sýnt hvernig einkaaðilar geta komið saman og leyst þessi vandamál. Einnig er rýnt örstutt í ímyndaða lausn Friedmans á frjálsum markaði um löggæslu og mótrök hans gegn Nozick kynnt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA Helgi Þórir Sveinsson.pdf | 745.11 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |