Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1826
Í skýrslu frá Reykjavíkurborg kom fram að haustið 1998 voru 272 börn af erlendum uppruna í leikskólum borgarinnar en haustið 2007 voru þau orðin 706 talsins. Okkur fannst því vera brýn þörf fyrir handbók tengda tvítyngi. Íslenska sem annað tungumál er lokaverkefni okkar til fullnaðar B.Ed.-gráðu í leikskólafræðum við Kennaraháskóla Íslands vorið 2008. Handbókin er fræðsluefni fyrir þá sem starfa á leikskólum og vilja auka þekkingu sína á vinnu með börnum með fleiri en eitt tungumál. Í henni koma fram leiðir og ýmsar upplýsingar um hvernig taka eigi á móti barni með annað móðurmál en íslensku ásamt því að gefa hugmyndir að góðu foreldrasamstarfi á milli starfsfólks og foreldra með erlendan uppruna. Markmið okkar með handbókinni er að hún nýtist börnum í leikskólum til málörvunar og starfsmönnum við kennslu barna. Handbókin er byggð upp með markmiðum Aðalnámskrá leikskóla í huga.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
heimildaskra.pdf | 77,13 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
handbok.pdf | 927,58 kB | Lokaður | Handbók | ||
greina.pdf | 183,17 kB | Opinn | Greinagerð | Skoða/Opna | |
urdrattur.pdf | 45,85 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna | |
Efnisyfirlit2.pdf | 61,37 kB | Opinn | Efnisyfirlit handbókar | Skoða/Opna |