Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18298
Markmið þessarar rannsóknar var að auðkenna hlutverk glúkónat kínasa í mannafrumum. Í þeim tilgangi var hlutfallsleg tjáning erfðavísisins milli mismunandi aðstæðna metinn með magnbundnu pólýmerasa keðjuhvarfi (qPCR). Nánar tiltekið voru áhrif viðbótar glúkónats annarsvegar og ATP hinsvegar í frumuætið á tjáningu IDNK í Ht-29 frumum athuguð. Sýnum var safnað á þremur tímapunktum og áhrif tímasetningar sýnatöku metin. Niðurstöður urðu þær að viðbót glúkónats í frumuæti hefur engin áhrif á tjáningu IDNK. ATP viðbót í frumuæti hafði einnig lítil áhrif. Aftur á móti hefur tímasetning sýnatöku veruleg áhrif: Tjáning IDNK lækkaði eftir því sem lengra var liðið frá viðbót nýs ætis.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Freyr Jóhannsson.pdf | 764.37 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |