Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1845
Þessi ritgerð fjallar um skipulag leikskóladeilda fyrir börn á aldrinum 10 – 24 mánaða. Börn á þessum aldri eru kölluð kjagarar vegna hins sérstaka göngulags þeirra. Í upphafi er farið í gegnum helstu þroskaþætti þeirra og vöxt. Stuðst er við kenningar Daniel Stern um sjálfið og hvernig það þroskast á þessum aldri. Það er margt sem hægt er að gera í umhverfinu til að styðja við þennan þroska.
Á þessum aldri fer mestur þroski fram í gegnum leik. Leikurinn er því sérstaklega skoðaður, hvers konar leikir eru aðallega í gangi og hvaða þroskaþætti þeir hafa áhrif á.
Að síðustu er svo hugað að uppsetningu á leikskóladeild fyrir þennan aldur. Hvernig sé æskilegt að skipuleggja slíka deild svo að hún uppfylli sem best þarfir kjagara um öruggt og þroskandi umhverfi.
Lykilorð: Smábarnadeild.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni_sigurlaug.pdf | 232.29 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Kapan_min.pdf | 41.84 kB | Opinn | Kápa | Skoða/Opna |