Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/18767
Í þessari rannsókn voru vaxtarskilyrði örþörungsins Nannochloropsis oculata könnuð í tveimur gerðum vatnssýna og við tvenns konar birtuskilyrði á þriggja vikna tímabili. Vatnssýni voru annars vegar fengin úr lóni við kalkþörungaverksmiðjuna á Bíldudal og hinsvegar sjó sem sóttur var í fjöruborðið í um það bil 500 m fjarlægð frá verksmiðjunni.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að við þær aðstæður sem notast var við í rannsókninni var vaxtarhraði þörungsins lítill sem enginn. Í rannsókninni voru heimtur fyrir fitu, prótein og lífmassa einnig mældar og voru heimtur þessara efna litlar sem var í samræmi við vöxt þörungsins. Mestu heimtur fyrir fitu þörungsins voru úr rækt D eða 227,5 µg/mL á degi 14 en minnstar voru þær fyrir rækt A eða 105 µg/mL einnig á degi 14. Hvað prótein heimtur varðar voru mestu heimtur úr rækt D líkt og með fituna eða 49,27 µg/mL einnig á degi 14 en minnstar voru heimturnar úr rækt A á sama degi eða 34,73 µg/mL. Hvað varðar heimtur á Lífmassa voru þær mestar á degi 7 en þar voru mestu heimtur 0,9 mg/mL úr rækt B en minnstu lífmassa heimtur voru þó úr ræktum C og D eða 0,433 mg/mL á sama degi.
Lykilorð: örþörungar, Nannochloropsis oculat, fita, prótein, lífmassi
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskýrsla_Nancy_2014.pdf | 1.65 MB | Open | Heildartexti | View/Open |