Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1882
Verkefni þetta er lokaverkefni okkar til B.Ed. prófs frá grunnskólabraut Kennaraháskóla Íslands. Það skiptist í tvo hluta, greinargerð annars vegar og námsspil hins vegar sem er ætlað fyrir nemendur á yngsta stigi grunnskóla.
Í greinagerðinni er fjallað um hugsmíðahyggju sem á rætur sínar að rekja til fræðimannanna Lev Vygotsky og Jean Piaget og seinni tíma fræðimanna eins og Howard Gardners. Sagt er frá því hvernig börn eru virk í eigin þroska og hvernig má bæta við þekkingu þeirra. Spilið Litlu snillingarnir er byggt upp með kenningar ofangreindra fræðimanna í huga og eru markmið Aðalnámskrár grunnskóla höfð til hliðsjónar við gerð spurninganna. Það er ætlað börnum í 1. og 2. bekk grunnskóla. Áhersla er lögð á námsgreinarnar stærðfræði, íslensku, náttúrufræði og umhverfismennt og samfélagsfræði. Í greinargerðinni er einnig fjallað um uppruna spila og hvernig námsspil geta nýst í kennslu og í lokin er sagt frá gerð og uppbyggingu spilsins Litlu snillingarnir .
Hinn hluti lokaverkefnisins er spilið sjálft en við höfum hannað það og útbúið sjálfar þannig að það er tilbúið til notkunar. Spilaborðið byggist upp á ákveðinni leið þar sem leysa þarf ýmsar þrautir. Ákveðnar reglur fylgja spilinu en þó má alltaf víkja frá þeim ef þurfa þykir.
Með því að nýta sér námsspil í kennslu er verið að brjóta upp hina hefðbundnu kennslu sem um leið eykur skilning nemenda á námsefninu og þekking þeirra eykst.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
forsíða.pdf | 42.6 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
greinargerð.pdf | 1.23 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Fylgiskjöl.pdf | 131.69 kB | Lokaður | Fylgiskjöl | ||
Titilsida.pdf | 22.12 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |