Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/18961
Markmið þessa lokaverkefnis er að sýna fram á kosti þess að nota leik í stærðfræðinámi barna á yngsta stigi grunnskólans. Við teljum að með því að nota leik í náminu stuðli það að samfellu í námi barna. Leikur er börnum eðlislægur og ætti hann þannig að auðvelda flutning á milli leikskóla og grunnskóla þar sem þau eru vön leik í leikskólanum. Leik má nota í kennslufræðilegum tilgangi og hentar hann vel í stærðfræðinámi ungra barna þar sem mikilvægt er að kenna stærðfræði á fjölbreyttan hátt í gegnum lifandi viðfangsefni. Þannig er líklegra að börnin skilji það sem þau fást við í stað þess einungis að reikna dæmi í bókum. Máli okkar til stuðnings munum við fjalla um kenningar þeirra Lees Vygotsky og Johns Dewey en báðir lögðu þeir áherslu á leik sem mikilvægan þroskaþátt í lífi barna. Dewey er einnig þekktur fyrir áherslu sína á samfellu í námi barna og er talsvert fjallað um hana í ritgerðinni. Í lok ritgerðarinnar munum við svo fjalla um hvernig kenna má stærðfræði í gegnum leik á yngsta stigi grunnskólans og munum við þar koma með dæmi að leikjum sem henta í stærðfræðikennslu í fyrsta bekk og uppfylla hæfnimarkmið Aðalnámskrár grunnskóla. Við vonum að þetta verkefni geti nýst bæði kennurum og verðandi kennurum á yngsta stigi grunnskólans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed. ritgerðin.pdf | 464,81 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |