Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/19059
Þessi ritgerð fjallar um fólk með þroskahömlun, fjölskyldulíf og barneignir, kynverund og kynfræðslu. Markmið hennar er að varpa ljósi á möguleika fólks með þroskahömlun til að eiga heilbrigt kynlíf, stofna til fjölskyldu og eignast börn. Einkum er litið á þetta frá sjónarhóli kvenna með þroskahömlun en þær hafa í gegnum tíðina mætt ýmsum fordómum og hindrunum þegar kemur að þessum þáttum. Ritgerðin byggir annars vegar á fræðilegum heimildum og hins vegar var gagna aflað með því að senda spurningar í gegnum tölvupóst til aðila sem þekkja vel til efnisins. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar benda til að þrátt fyrir að margt hafi horft til betri vegar síðustu ár, þá sé enn nokkuð í land að viðhorf, stuðningur og fræðsla er varðar fjölskyldulíf og barneignir fatlaðs fólks sé eins og best verður á kosið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð. Fólk með þroskahömlun, fjölskyldulíf og barneignir.pdf | 594.07 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |