is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19176

Titill: 
  • Frost, dulúð og töfrar? : Norðurland að vetri í hugum gesta
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið verkefnisins er að greina erlenda ferðamenn sem ferðast til Norðurlands að vetri niður í skilgreinda markhópa eftir því hverjir þeir eru, ástæðu komu þeirra á svæðið, hegðun þeirra og þörfum. Að auki er mikilvægt að fá fram sýn þeirra á svæðið og hvernig svæðið og afþreying í boði stóð undir þeirra væntingum. Verkefnið er úrvinnsla á rannsókn sem Akureyrarstofa framkvæmdi í samvinnu við Rannsóknarmiðstöð ferðamála meðal gesta á gististöðum á Akureyri vorið 2013. Rannsóknin var hefðbundin megindleg spurningakönnun með nokkrum opnum spurningum og var var lögð fram á tímabilinu 1. febrúar til 30. apríl 2013 á þeim gististöðum þar sem er að staðaldri mönnuð gestamóttaka. Ekki var hægt að hafa áhrif á samsetningu úrtaksins og því um ólíkindaúrtak að ræða en alls skiluðu sér 532 svör. Þegar búið var að greina svörin voru nokkrir aðilar í ferðaþjónustu beðnir að leggja mat sitt á þau.
    Í verkefninu er farið fræðilega yfir þá þætti sem tengjast markaðssetningu á svæðinu og greiningu markaða, markaðsfræði, þjónustumarkaðsfræði og neytandahegðun og fjallað almennt um ferðaþjónustu og breytingar síðustu ára á Norðurlandi. Þá eru niðurstöður verkefnisins kynntar og sagt frá lykilniðurstöðum áður en þær eru dregnar saman. Lykilniðurstöður verkefnisins eru að hinn erlendi vetrarferðamaður á Norðurlandi er á aldrinum 30–75 ára, býr í þéttbýli eða borg, er vel menntaður og með tekjur yfir meðaltali. Hann leitar að nýjum og spennandi áfangastöðum, vill ferðast að vetri til og er fyrir áskoranir. Honum líkar vel við Norðurland en bendir þó á hluti sem þarfnast lagfæringa.
    Niðurstöðurnar gefa möguleika á því að hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu á svæðinu geti greint sinn markhóp betur til að gera sitt markaðsstarf auðveldara og markvissara.
    Lykilorð:
    Markhópagreining-Vetur-Ferðaþjónusta- Norðurland - Spurningakönnun

Samþykkt: 
  • 24.6.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19176


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BScLokaritgerð_BaldurIngiKarlsson_ha100400.pdf3.5 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna