Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1928
Verkefni þetta fjallar um stærðfræðinám og -kennslu á yngsta stigi grunnskóla. Verkefnið inniheldur fræðilegan kafla þar sem fjallað er um ákveðna kennimenn og hugmyndir þeirra um nám og kennslu barna. Þar er einnig umfjöllun um þroskaþætti, þar sem stuðst er við bókina Vara Växa Lära eftir Bo Eriksson og Gunhild Oskarsson. Við fjöllum um stærðfræðikennslu, okkar sýn á kennsluna og setjum fram markmið og leiðir við kennslu með hliðsjón af aðferðum og inntaksþáttum Aðalnámskrár. Við fjöllum einnig um hvernig stærðfræðiskilningur þróast hjá börnum, þau námsgögn sem hægt er að nýta í stærðfræðikennslu á yngsta stigi og að lokum um námsmat, tilgang þess og aðferðir.
Lykilorð: Stærðfræðiskilningur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni_Skemma.pdf | 325.02 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
360a_skemma.pdf | 53.8 kB | Opinn | Kápa_titilsíða | Skoða/Opna |