is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1938

Titill: 
  • Aukefni í matvælum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Aukefni (auðkennd E og númeri) eru efni sem notuð eru í matvælaiðnaði. Með breyttum þjóðfélagsháttum hefur notkun þeirra aukist verulega. Þau gegna mikilvægu hlutverki í matvælum og geta jafnvel komið í veg fyrir hættulegar matareitranir. Meðal leikmanna (og sumra sérfræðinga) er notkun efnanna umdeild. Rúm þrjátíu ár eru síðan fyrst var farið að draga hollustu ákveðinna aukefna í efa. Mataróþol hefur aukist mikið í hinum vestræna heimi, hvað veldur er ekki alltaf ljóst, en vitað er að sum aukefni geta valdið óþoli. Þá er ráðgátan um orsakir heilkennisins ADHD ennþá óleyst, þrátt fyrir að ýmsir hafi staðið fyrir rannsóknum á þessu sviði í áranna rás. Bent hefur verið á að neysla aukefna kunni að stuðla að ADHD. Nýlega hafa birst tvær stórar rannsóknir á aukefnum, þ.e. annarsvegar um sætuefnið aspartam og hinsvegar um nokkur litarefni og eitt rotvarnarefni. Rannsakendur halda því fram að efnin séu skaðleg, en Matvæla-öryggisstofnun Evrópu staðfesti ekki niðurstöður rannsóknanna. Enn er því deilt um skaðleysi aukefna.

Athugasemdir: 
  • Grunnskólabraut
Samþykkt: 
  • 22.9.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1938


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Aukefni í matvælum - lokaritgerð vorið 2008.pdf335.16 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna