Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1954
Eftirfarandi ritgerð greinir annars vegar frá fræðilegri umfjöllun um lög og reglugerðir á sviði kennslu í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði og frá rannsóknum sem gerðar hafa verið á þessu sviði. Hins vegar er greint frá könnun sem gerð var sérstaklega á viðhorfi foreldra til kennslu í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði í grunnskólum á Íslandi. Rannsóknarsnið umræddrar könnunar var megindlegt þar sem athugun var gerð með spurningalistakönnun. Megináhersla var lögð á að nálgast upplifun foreldra með ólíkan menningarlegan bakgrunn, á kennslu greinarinnar hjá barni sínu. Jafnframt var leitað eftir viðhorfi og hugmyndum foreldra til skipulagningar kennslu og kennsluaðferða í greininni. Spurningalistakönnunin var lögð fyrir í Nóvember 2007. Þýði könnunarinnar var foreldrar barna í íslenskum grunnskólum, af íslenskum og erlendum uppruna. Úrtakið var valið markvisst með tilgang könnunarinnar í huga og innihélt 42 foreldra af íslensku og erlendu þjóðerni.
Niðurstöður gefa ákveðnar vísbendingar um svipaða þróun og virðist hafa átt sér stað á viðhorfi um þessi mál almennt í samfélaginu undanfarið. Viðhorfi sem menntamálaráðuneytið hefur nú þegar brugðist við að einhverju leyti með endurskoðaðri aðalnámskrá í kristnum fræðum, siðfræði og trúarbragðafræði (KST). Foreldrar virðast almennt nokkuð sáttir við hluta kennslu í kristnum fræðum en meirihluti aðspurðra vill auka vægi annarra trúarbragða í kennslu. Þetta kemur heim og saman við skoðanir kennara og almennings og er í takt við þær miklu þjóðfélagsbreytingar sem hafa átt sér stað á Íslandi undanfarin ár.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
IngibjSve_ Forsida_titilsida.pdf | 73.54 kB | Opinn | Forsíða og titilsíða | Skoða/Opna | |
IngibjSve_Lokaverkefni.pdf | 1.47 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
IngibjSve_Vidauki.pdf | 72.7 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna |