Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/19559
Greinargerð þessi er hluti af meistaravekefni mínu í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Hún fjallar um vinnsluferlið og hugmyndafræðina á bak við miðlunarhluta verkefnisins sem er 25 mínútna heimildarmynd, SAMSUÐA - saga átta listamanna. Myndin fjallar um átta listamenn sem unnu tveir og tveir saman við það að skapa eitt verk. Listahátíðin List án landamæra, vorið 2014, sá um uppboðið.
Í hverju listamannspari var einn listamaður með fötlun og einn án. Verkefnið sýnir hvernig listamenn með ólíkan bakgrunn geta haft áhrif á sköpun hvors annars. Með listsköpun sinni brúa þeir bilið á milli samfélagshópa með því að stuðla að samstarfi á milli listamanna. Tengsl mín við hátíðina List án landamæra eru mikil en ég starfaði sem framkvæmdastýra hennar á sama tíma og ég gerði heimildarmyndina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ritgerdir_forsida_1.pdf | 100,56 kB | Lokaður til...10.09.2090 | Forsíða | ||
ritgerdir_titilsida.pdf | 59,95 kB | Lokaður til...10.09.2090 | Titilsíða | ||
MASTER-final.pdf | 20,64 MB | Lokaður til...10.09.2090 | Greinargerð | ||
RitgerðÍS.pdf | 15,22 MB | Lokaður | Yfirlýsing |