Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/19645
Bankahrunið haustið 2008 hafði ekki aðeins kollsteypuáhrif á fjárhag þjóðarinnar heldur kallaði það á grundvallarendurskoðun á stoðum íslensks lýðræðis og stjórnkerfis. Þjóðin þurfti að líta í eigin barm og meta sjálfsálit sitt frá grunni. Hofmóður stjórnvalda og mikils hluta þjóðarinnar eftir velgengni undanfarinna ára varð í skyndi að víkja fyrir skömm og auðmýkt, undirgefni við skilyrta hjálp Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Norðurlanda annars vegar og átök við Breta og Hollendinga hins vegar. Bretar gerðu einum betur: Lýstu Íslandi sem hryðjuverkaríki og fóru með fjárreiður landsins í breskum bönkum í samræmi þar við.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forræði þjóðar forsíða II.pdf | 62,07 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Forræði þjóðar titilsíða.pdf | 7,62 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna | |
Forræði þjóðar aðaltexti.pdf | 1,24 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |