Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/19829
Klasahugmyndafræðin og aðferðafræði formgerðs klasasamstarf hefur verið að ryðja sér til rúms á Íslandi síðustu ár líkt og víða annars staðar í heiminum. Klasi er samstarfsvettvangur sem hefur það markmið að ná tiltekum árangri. Heildarvirði klasa er meira en samanlagt virði þeirra skipulagsheilda sem hann mynda. Íslenski fjarskiptaklasinn sem heild stendur frammi fyrir miklum áskorunum. Engin skipulögð formgerð samvinna á sér stað innan klasans í dag.
Markmiðið með þessari rannsókn er að svara því hvort formgert klasasamstarf sé til þess fallið að auka framleiðni íslenska fjarskiptaklasans. Tekin voru tólf viðtöl við stjórnendur og áhrifafólk úr fjarskiptaklasanum, þar af átta frá markaðsfyrirtækjum, tveir frá tengdum klösum, einn frá sérfræðifyrirtæki og einn frá stjórnvöldum. Jafnframt var lögð fyrir þá könnun. Rannsóknin er lýsandi raundæmisrannsókn þar sem fjarskiptaklasinn er greindur með eigindlegri og megindlegri aðferðafræði.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru í stuttu mála þær að íslenski fjarskiptaklasinn er ekki virkur klasi. Lítil samskipti eru milli hagsmunaaðila, sem viðmælendur töldu mikilvægt að bæta. Fyrirtækin í klasanum standa fram fyrir miklum og vaxandi samkeppniskröftum sem ógna fjárhagslegri afkomu og fjárfestingargetu. Samkeppni vex erlendis frá. Forgangsröðun verkefnahópa í mögulegu fjarskiptaklasasamstarfi er áþekk áherslum í starfandi klösum víða um heim. Forgangsáherslur klasans yrðu að byggja upp traust, bæta framleiðni og ná saman um framtíðarsýn. Viðmælendur voru almennt jákvæðir gagnvart formgerðu samstarfi í klasanum.
Cluster theory and the methodology of formal cluster initiatives has been emerging in Iceland in recent years like in other parts of the world. A cluster is an alliance which aim is to achieve specific results. The total value of a cluster is more than the combined individual value of its members. The Icelandic Telecommunications Cluster (ITC) is facing challenges. Organized collaboration does not occur within the cluster today.
The aim of this study is to answer whether a formal cluster initiative can serve to increase the productivity of the ITC. Twelve interviews were conducted with executives and influential people from the ITC, including eight from market firms, two from related clusters, one from a specialist firm and one from the government. The participants also filled out a survey. The study is a descriptive case study in which the ITC is analyzed by qualitative and quantitative methodology.
The ITC is not an active cluster. Communication and collaboration between cluster stakeholders is minimal. Interviewees felt in general that an improvement in this area was important. The ITC companies are facing increasing competitive forces that threaten their financial performance and investment capacity. Competition from abroad is increasing. Prioritization of potential cluster collaboration objectives is similar to prioritization of similar objectives in existing clusters worldwide. The primary focus of an ITC initiative should be on building trust, improving productivity and setting a vision for the ITC. Respondents were generally positive towards a formal ITC initiative.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MS lokaskjal skil.pdf | 3,14 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |