is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1986

Titill: 
  • Heilsuuppeldi í leikskólum með áherslu á næringu : hlutverk og tækifæri
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta er lokaverkefni til B.Ed -prófs í leikskólakennarafræði og er heimildaritgerð um heilsuuppeldi í leikskólum með áherslu á næringu. Rannsóknarspurningin er: tækifæri leikskólans í heilsuuppeldi og hlutverk leikskólans með áherslu á næringu. Fyrst verður komið inn á næringarfræði og mikilvægi hollrar og fjölbreytilega fæðu. Stutt umfjöllun um mikilvægi hreyfingar og svefns. Einnig um áhrif næringar á líðan og heilsu leikskólabarna, tannumhirðu, sérfæðu og matvendi. Nefndar eru nokkrar leiðir fyrir leikskólakennara og foreldra sem hjálpar börnum að meta hollan mat með ýmsum skemmtilegum verkefnum og aðferðum. Síðan er fjallað um samstarf heimilsis og leikskóla. Samvinnan á sér stað með upplýsingaflæði og boðleiðum frá leikskóla til foreldra um það starf sem á sér stað í leikskólanum og þann mat sem verið er að gefa börnunum. Til að hámarks árangur náist í að tryggja leikskólabörnum hollan og fjölbreyttan mat er fólgin í samvinnu foreldra og leikskólakennara. Leikskólakennarar geta hvatt börn til þess að borða hollan mat á leikskólatíma en síðan þegar heim er komið skiptir máli að samræma kvöldmatinn við hádegismatinn í leikskólanum. Einnig er komið inn á ýmsar rannsóknir og kannanir sem athuga viðhorf og hegðun barna og foreldra, áhrif fjölmiðla á fæðuval barna og matarmenningu íslenskra og erlendra barna.
    Lykilorð: Heilsuuppeldi.

Athugasemdir: 
  • Leikskólakennarafræði
Samþykkt: 
  • 18.11.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1986


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Heilsuuppeldi-útdráttur.pdf86.62 kBOpinnÚtdráttur og formáliPDFSkoða/Opna
Heilsuuppeldi-meginmál.pdf618.43 kBLokaðurMeginmálPDF