Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1990
Verkefni þetta er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskóla Íslands haustið 2008.
Góð hreyfing minnkar líkur á offitu barna sem virðist því miður verið að aukast síðustu ár. Hreyfing hefur áhrif á marga þroskaþætti barna, til dæmis félagsþroskann sem eflist þegar börn vinna saman. Þau börn sem stunda hreyfingu og íþróttir eru líklegri til að vera ánægðari með líf sitt og eru sjálfsöruggari.
Verkefni þetta fjallar um hreyfingu barna á leikskólaaldri, markvissa þjálfun leikskólabarna og áhrif hreyfingar á holdafar og heilsu barna. Einnig er fjallað um hlutverk foreldra og kennara í tengslum við heyfingu barna á leikskóla. Í lok ritgerðar eru nokkrar hugmyndir af leikjum sem gaman væri að nota í hreyfistundum á leikskólum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni_ritgerd.pdf | 272,3 kB | Opinn | hreyfing leikskólabarna-heild | Skoða/Opna | |
lokaverkefni_forsida.pdf | 81,91 kB | Opinn | forsíða, titilsíða og formáli | Skoða/Opna |