Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12632
Ritgerðin fjallar um reglur um sakhæfi í skaðabótarétti og hvernig sakarreglunni er beitt gagnvart börnum. Gerð verður grein fyrir helstu reglum um bótagrundvöllinn í skaðabótarétti. Stuðst verður við rit fræðimanna og skoðaðir verða dómar í skaðabótamálum barna og niðurstaða þeirra rædd til þess að varpa sem bestu ljósi á það hvernig og hvenær börn eru talin sakhæf. Niðurstaða umfjöllunarinnar er sú að sakarreglunni er beitt gagnvart börnum sem og fullorðnum og í raun eru gerð sömu
skilyrði við mat á því hvort einstaklingur telst sakhæfur, hvort sem hann er barn eða fullorðinn. Meta þarf hvert tilvik fyrir sig og taka tillit til ýmissa atriða. Þá er sakarmatið þannig að litið er til þess hvað eðlilegt barn á sama aldri og það barn sem
olli tjóninu hefði gert í sömu aðstæðum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Tilbuin-BSritgerð-Dagnyfjola.pdf | 343.3 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |