Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20556
Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að kanna hver staða Skagastrandar væri sem áfangastaður ferðamanna. Til að kynnast að viðhorfum og skoðunum heimamanna á ferðaþjónustu á Skagaströnd voru tekin viðtöl við fjóra einstaklinga sem koma á einn eða annan hátt að ferðaþjónustu. Þá verða niðurstöður viðtalanna fléttaðar saman við fræðin með því að taka fyrir hugmyndir Gunn’s um uppbyggingu ferðamannastaða og lífskúrfu Butlers um þróun ferðamannastaða og er staða Skagastrandar borin saman við fræðin. Helstu niðurstöður sýna að Skagaströnd stendur ekki vel að vígi þegar kemur að ferðaþjónustu. Viðmælendur voru mjög jákvæðir fyrir frekari uppbyggingu ferðaþjónustu og höfðu margar hugmyndir um hvernig mætti bæta þjónustuna. Viðmælendur töldu helstu hindrunina sem þyrfti að ráðast í væri að byggja upp gistiaðstöðu fyrir ferðamenn sem vilja sækja Skagaströnd heim.
Lykilorð: Ferðaþjónusta, jaðarsvæði, áfangastaður, þróun áfangastaða, aðdráttarafl, Skagaströnd
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kristín Björk Leifsdóttir_BS_lokaverkefni.pdf | 1.38 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Afritun er óheimil nema með leyfi höfundar.