Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/39503
Flutningur málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga fór fram 1. janúar 2011 en komist var að
samkomulagi um útfærslu á þjónustu við fatlað fólk í nóvember 2010. Var markmiðið með
flutningnum að færa ábyrgð á fjármögnun þjónustunnar frá ríki til sveitarfélaga og með því
tryggja sveitarfélögum réttmætan fjárhagsramma. Er viðfangsefni þessarar ritgerðar er ætlað
varpa nánari ljósi á þessa útfærslu í nánari ljósi með réttindum fatlaðra í huga samkvæmt
innlendri löggjöf ásamt alþjóðlegum skuldbindingum sem Ísland hefur gengst að og verða
skyldur sveitarfélaga skoðaðar í þessu samhengi.
Í öðrum kafla ritgerðarinnar er fjallað um þróun löggjafans í málaflokknum og í fjórða kafla
verður fjallað um réttaröryggi fatlaðra. Í fimmta kafla er skoðaður réttur fatlaðra til
heilbrigðisþjónustu. Kafli sex inniheldur umfjöllfun um réttin til framfærslu og félagsþjónustu.
Fjallað er um réttinn til menntunar í sjöund kafla en í áttunda kafla er fjallað um stjórnskipulag
málefna fatlaðra og langveikra. Að lokum er svo fjallað um lög um stuðning við fatlað fólk með
langvarandi stuðningsþarfir. Reiddi rannsóknin í ljós að réttindi fatlaðra hafa tekið miklum
breytingum til hins betra síðustu ár vegna þeirra alþjóðaskuldbindinga sem Ísland hefur tekið
upp og leitt í lög hér á landi. Hefur einnig vinna átt sér stað í breytingum á innlendri löggjöf
sem hefur veitt þessum réttindum hátt undir höfði. Þrátt fyrir það hefur dómaframkvæmd sýnt
að eftir flutning málaflokksins hafa dómstólar ekki viljað fara of langt gegn
sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga og því nauðsynlegt, að mati höfunar, að breyta þurfi viðhorfi
innan íslensks réttarkerfis og stjórnsýslu, svo þeim markmiðum sem stefnt er að verði náð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skylda sveitarfélaga til fjölskyldna með langveik börn_vignir.pdf | 775.19 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
VignirSigurjónsson_5773_165804_Yfirlysing_VignirSigurjónsson-1.pdf | 62.27 kB | Lokaður | Yfirlýsing |