Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19990
Markmið rannsóknarinnar er að kanna almennan aðgang að útgefinni íslenskri
þekkingu. Kannaður var bókfræðilegur aðgangur og aðgangur að frumtexta
íslenskra og erlendra markaðsrita og íslenskra utanmarkaðsrita. Könnunargögn
voru birt niðurstöður rannsókna við Háskóla Íslands á völdum efnissviðum,
fengin frá Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskólans. Útgáfurit á tilteknum
efnssviðum voru greind með tilliti til bókfræðilegs aðgangs og þar með
mögulegri notkun heildartexta, með leit í Gegni.is og Leitum.is (leitar m.a. í
Hvar.is og Skemmunni.is). Niðurstöður bentu til að bæði bókfræðilegum
aðgangi og aðgangi að frumtexta íslenskrar rannsóknarþekkingar væri verulega
ábótavant. Það átti sérstaklega við um íslensk utanmarkaðsrit, en einnig erlendu
birtingarnar. Í ljósi þessara niðurstaðna þarf að koma á skilaskyldu á útgáfuritum
sem hafa að geyma þekkingu sem til verður hér á landi, óháð tegund dreifingar,
útgáfumiðli og útgáfulandi. Einnig þarf að færa aðgang að rafrænum
utanmarkaðsritum til sama horfs og að pappírsútgáfu. Til þess að ná þeim
markmiðum verður að gera breytingar á lögum um skylduskil til safna og lögum
um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn. Lagabreytingarnar eru m.a.
forsenda þess að ná markmiðum um opinn aðgang samkvæmt
Berlínarsamþykktinni sem snýr að vísindaskrifum í markaðsritum og um aðgang
að utanmarkaðsritum samkvæmt Pisasamþykktinni. Aðgangurinn þarf að
gagnast jafnt til samtíðar- sem framtíðarnota.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Aðgangur að útgefinni íslenskri þekkingu_Félags- og mannvísindadeild.pdf | 633.14 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |