Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/28380
Í þessari ritgerð verður farið yfir það í hvaða tilfellum hægt er að beita synjunarheimild 4. tl. 12. gr. laga nr. 160/1995 um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl. (hér eftir brottnámslög eða bnl.). Samkvæmt þeirri grein er heimilt að synja um afhendingu barns í brottnámsmálum sem höfðuð eru skv. bnl. ef „afhending er ekki í samræmi við grundvallarreglur hér á landi um verndun mannréttinda.“.
Við rannsóknina mun höfundur styðjast við viðurkenndar lögfræðilegar rannóknaraðferðir og leita svara við rannsóknarspurningunni:
Hvenær má synja um afhendingu barns skv. 4. tl. 12. gr. laga um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl. nr. 160/1995
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ardishlifar_Bs_lokaverk.pdf | 861.01 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |