is Íslenska en English

Grein

Háskólinn á Bifröst > Rafræn tímarit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7866

Titill: 
  • Skipulagsform íslenskra fyrirtækja
Útgáfa: 
  • 2008
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar greinar er í fyrsta lagi að kanna hvaða skipulagsform (skipurit) eru við lýði í íslenskum fyrirtækjum. Í öðru lagi er markmiðið að kanna áhrif stærðar fyrirtækja og rekstrarumhverfis á skipulag þeirra. Greinin byggir á
    niðurstöðum netkönnunar sem framkvæmd var af Rannsóknar- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri. Svör bárust frá 222 fyrirtækjum (46% svörun). Niðurstöður benda til að stærð fyrirtækjanna hafi mjög mikil áhrif á marga þætti skipulags. Stærri fyrirtækin eru formlegri, sérhæfðari og hafa frekar starfslýsingar. Þau hafa einnig oftar samþykkt stjórnskipulag, eru skipulögð í anda fléttuskipulags, og hafa þrjú eða fleiri
    stjórnþrep. Rekstrarumhverfi fyrirtækja hefur áhrif með þeim hætti að starfaskipulag er algengara í stöðugu rekstrarumhverfi og einnig eru fyrirtæki í óstöðugu umhverfi óformlegri en önnur fyrirtæki. Enginn munur kom fram varðandi skipulag framleiðslu- og þjónustufyrirtækja, en þau síðarnefndu hafa hærra hlutfall
    háskólamenntaðra starfsmanna. Þörf er á frekari rannsóknum á skipulagi til að efla íslenskt atvinnulíf og tryggja varanlegan árangur fyrirtækja.

  • Útdráttur er á ensku

    The main goal of this article is to investigate the organizational structure of Icelandic firms. A secondary goal is to see what influence the size and external environment of firms have on their organizational structure. The article is based on an
    Internet survey which was carried out by the University of Akureyri’s Research and Development Center. 222 firms responded to the survey (46% response rate). The results suggest that the size of firms has great influence on many organizational
    characteristics. Larger firms are more formal and specialized and are more likely to use written job descriptions. They are also more likely to have a defined organizational structure, to be organized in a matrix structure, and to have three or more management levels. Firms’ external environment has an effect as well, in that functional structure is more common in stable environments, and firms in unstable environments are more informal than other firms. There were no differences in the
    organization structure of manufacturing versus service firms, though the latter have a higher percentage of university-trained employees. More research in this area would contribute to the strength of the Icelandic economy and to enduring success for
    Icelandic firms.

Birtist í: 
  • Bifröst Journal of Social Science / Tímarit um félagsvísindi. 2008, 2(1) : 5-26
ISSN: 
  • 1670-7796
Athugasemdir: 
  • Ritrýnd grein
Samþykkt: 
  • 7.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7866


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ingi_runar_edvardsson.pdf373.39 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna