Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/20111
Þessari greinagerð fylgir vefsíða með einföldum og hollum uppskriftum af góðum heimilismat. Í greinagerðinni er fjallað um samverustund fjölskyldunnar og hvernig nýta má matreiðslu til þess að eiga góða uppeldislega stund saman og samstarf mitt við leikskólann Kór. Einnig er komið inn á næringu barna, af hverju börn þurfa borða holla fæðu þar sem þau eru nær 8 tíma á dag í leik- og grunnskóla og þurfa því næringarríkan mat til þess að hafa orku í daginn. Börn geta tekið þátt í heimilisstörfum eins og að elda mat með foreldrum sínum og nýtt þannig stundina til samveru. Einnig hefur verið sýnt fram á að ef börn hjálpa til við að elda matinn eru þau áhugasamari um að borða hann.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Eldað með Börnunum.pdf | 413.84 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |