en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/20214

Title: 
  • Title is in Icelandic Graffíti sem skemmdarverk eða listaverk: Er graffítí betur séð nú en áður?
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort einhverjar breytingar hafa orðið á orðræðunni um graffítí meðal almennings sem og borgarinnar sjálfar á seinustu árum. Í ritgerðinni er fjallað um graffítí almennt sem og graffarana sjálfa og þau undabrögð sem graffararnir beita. Ritgerðin byggir mestmegnis á viðtölum sem ég tók við einstaklinga sem graffa og þeim þátttökuathugunum sem ég fór í. Þátttökuathuganirnar gerðu það að verkum að ég kynntist graffsenunni á eigin skinni og upplifði það hvað það er í raun og veru að graffa. Það sem að drífur graffarana áfram er samblanda af ástríðu, pólitískri ádeilu og seinast en ekki síst félagsleg athöfn. Lífstíll hvers og eins endurspeglast síðan í því graffi sem viðkomandi skilur eftir sig og þannig fara að myndast ákveðin graffgengi. Þeir sem stunda þessa iðju og eru með svipaðan stíl taka sig saman og slást í graffgengi. Það gerir það að verkum að (táknrænt- og félagslegt-) auðmagn stækkar. Seinna meir getur síðan graffið orðið að efnahagslegu auðmagni eins og gerðist fyrir strákana í RWS. Athöfnin að graffa stangast á við lög og reglur samfélagsins og dregur fram samfélagsleg viðmið hins almenna borgara í dagsljósið en hugmyndir um hreinlæti eru oft á tíðum mikið ádeilu mál í þessum efnum. Margir halda að þeir sem graffa séu siðblindir og einhverskonar afsprengi af glæpamönnum en það eru að mínu mati aðeins fórdómar við hið óþekkta. Þetta er eitt af þeim fjölmörgu formum listar og á þennan hátt kaus þetta fólk að tjá sína list. Inn í ritgerðina blandast síðan saman kenningar fræðimanna og átakið Hrein borg sem Reykjavík fór í árið 2008. Að graffa er afar umdeilt og erfitt að setja það undir einn og sama hattinn. Því um leið og borgin fer að beita ráðagerðum til þess að hafa hendur í hári graffara, þá eru þeir strax komnir með svör og undanbrögð og aðlagast leiknum eins og hann er hverju sinni.

Accepted: 
  • Jan 5, 2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/20214


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
graffitisemskemmdarverkeðalistaverk.pdf1.49 MBOpenHeildartextiPDFView/Open
Yfirlýsing_ArnarHólm.pdf409.61 kBLockedYfirlýsingPDF