Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/20276
Í verkefni þessu verður farið yfir eignamat í reikningsskilum í ljósi markmiða þeirra. Athugað verður í hverju felist helsti munurinn að félög meti eignir sínar upp að markaðsvirði á móti því að meta þær samkvæmt kostnaðaraðferð. Skoðað verður mismunandi mat á eignum og hvaða reglur gildi. Helstu niðurstöður um hvort sé meira viðeigandi að meta eignir á kostnaðarverði eða gangvirði fara eftir því hvað gerir upplýsingar reikningsskila gagnlegar. Kostir gangvirðismats eru að upplýsingar reikningsskila verða tímanlegar, samanburðarhæfar, hafa spágildi og gefa endurgjöf til lesanda. Eignir metnar á kostnaðarverði veita áreiðanlegar upplýsingar, sem eru sannreynanlegar, hlutlausar og trúverðugar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bsritgerd-HildurBjork-lokaskil.pdf | 547.25 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |