Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/2029
Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvort að samband sé á milli fjölda íþróttagreina sem stundaðar voru á barnsaldri og árangurs í íþróttum almennt. Notuð var megindleg aðferðafræði þar sem nemendur í tveimur framhaldskólum svöruðu spurningalista sem innihélt ellefu spurningar sem tengdust viðfangsefni rannsóknarinnar.
Helstu niðurstöður voru þær að til þess að árangur náist í íþróttum á fullorðinsárum virðist betra að vera í fleiri en einni íþróttagrein. Mun fleiri einstakingar stunda íþróttir í skólum þar sem bekkjarkerfi er og stunda þeir iðju sína oftast 3-4 sinnum í viku. Þá virðist áhugaleysi vera ein stærsta orsök þess að börn og unglingar hætti í íþróttum. Eins og búast mátti við eru knattspyrna og handknattleikur vinsælustu íþróttirnar og einnig er algengt að nemendur sem að eru komnir í menntaskóla stundi líkamsrækt af einhverju tagi sem að er mjög jákvætt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ingvar_ Lokaverkefni.pdf | 594,18 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
Ingvar_ Vidtal.pdf | 85,26 kB | Opinn | Viðtal | Skoða/Opna | |
Ingvar_Fors.pdf | 36,34 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Ingvar_Kapa.pdf | 15,47 kB | Opinn | Kápa | Skoða/Opna | |
Ingvar_Spurningalisti..pdf | 53,21 kB | Opinn | Spurningalisti | Skoða/Opna | |
Ingvar_utdrattur.pdf | 36,05 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna |