Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/20473
Þessi ritgerð fjallar um krítíska lengd jarðstrengja. Leitast er við að finna svokallaða krítíska lengd fyrir jarðstrengi við mismunandi aðstæður í raforkukerfi. Krítísk lengd segir okkur til um hversu langur strengur getur orðið áður en það þarf að launaflsútjafna kerfið.
Einnig er skoðuð krítísk lengd m.t.t. hlutfalls raunaflsflutnings í streng og er miðað við að það sé ekki undir 75% af heildar flutningsgetu.
Skoðaðar eru aðstæður við mismunandi álag og mismunandi styrkleika í kerfinu, þ.e. hversu hátt skammhlaupsafl þess er. Notast var við hermunarforritið Power World til að herma öll kerfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Krítísk lengd jarðstrengja_GunnarSigv_HR_2014.pdf | 3.03 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |