Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/20482
Verkefnið er almennt hönnunarverkfni á sviði loftræsingar og hvernig hitun og kælingu verður háttað í húsi sem hýsa á flughermi við Flugvelli 1 í Hafnarfirði. Í verkefninu er farið í helstu hönnunarforsendur við hönnun loftræsikerfa og
bornar saman mismunandi aðferðir við að loftræsa rými. Borinn er saman stofn og rekstrarkostnaður á samstæðum með og án
varmaendurvinnslu og sýnt fram á hagkvæmni slíkra kerfa.
Húsnæðið er 770 m2 stálgrindarhús. Tvíþætt starfsemi er í húsinu sem skiptist á þann veg að um það bil helmingur húsnæðis er ætlaður fyrir flughermi og starfsemi tengdri honum og í
hinum helming hússins verður æfingasalur til að þjálfa upp starfsfólk.
Í verkefninu eru hönnuð þrjú kerfi fyrir húsið.
Loftræsikerfi kerfi 1, sem viðhalda á fersklofti, rakastigi og anna kælingu í flughermissal. Kerfi 2 sem er lítið hitakerfi í flughermissal sem anna á upphitun sé kæling ekki aðkallandi og
loftræsikerfi anni ekki hitaþörf húsnæðis. Kerfi 3 sem er loftkælikerfi sem viðheldur réttu hitastigi í flughermi og kælir þann búnað sem í honum er, dreifing lofts innan flughermis er þó ekki hluti af þessari hönnun.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Lokaverkefni.pdf | 8,88 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |