Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/20494
Í þessu þróunarverkefni var unnið að því að þróa leiðir til að vinna með stjörnufræðileg viðfangsefni í leikskólastarfi og var verkefnið unnið í leikskólanum Björtuhlíð af kennurum þar og okkur höfundum skýrslunnar. Meginnálgun verkefnisins er að námsathafnirnar séu skapandi leikur frá sjónarhóli barnsins en tilraunir og athuganir á sviði náttúrufræða frá sjónarhóli leikskólakennara. Meðal annars voru þróaðir tveir vísindaleikir fyrir leikskólabörn á sviði stjörnufræði. Annar leikurinn fjallar um sólina og ferð hennar á himninum og hinn um kvartilaskipti tunglsins. Markmið þessara leikja er að börnin læri um tengsl dægraskipta og árstíðaskipta við gang sólar og um náttúrufræðilegar skýringar á breytilegu útliti tunglsins auk þess að stuðla að almennum þroska þeirra. Leikskólakennararnir leggi grunn að hugtakanámi barnsins með því að beina athygli þess að lykilþáttum í leiknum, með því að spyrja spurninga og með því að hvetja barnið til að tjá reynslu sína. Lögð er áhersla á að tengja þessa tjáningu listrænu og skapandi starfi. Þessir tveir vísindaleikir höfðuðu vel til flestra barnanna og virtust jafnframt hafa áhrif á skilning þeirra á fyrirbærunum sem unnið var með. Jafnframt þróun vísindaleikjanna tveggja var unnið í leikskólastarfinu með ýmsum öðrum hætti að stjörnufræðilegum viðfangsefnum og sú vinna tengd margvíslegu skapandi starfi. Öllu þessu starfi er lýst í þessari skýrslu í því augnamiði að gera fleiri leikskólakennurum kleift að taka upp samsvarandi starf.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Stjörnufræði á leikskóla.pdf | 1,21 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |