Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/20549
Í lokaverkefni þessu verður leitast við að skýra frá megineinkennum stöðuumboðs. Í upphafi verður farið stuttlega yfir setningu samningalaga og hvernig venjuréttur kemur inn í samningalögin. Skilgreint verður stuttlega hvað felst í milligöngu við samningsgerð og lauslega greint frá helstu tegundum umboða. Aðal áhersla verður lögð á stöðuumboð og hvað felst í hugtakinu stöðuumboð. Fjallað er stuttlega um rýmkun á hugtakinu stöðuumboð í dómaframkvæmd í Danmörku og velt er upp spurningunni hvort að íslenskir dómstólar séu farnir að líta til atferlisumboðs í dómaframkvæmd sinni. Einnig verður farið yfir þær reglur sem gilda um umboðsmenn þegar kemur að stöðuumboði og skaðabótaábyrgð umboðsmanna ef þeir fara út fyrir umboð sitt.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
THorunnUnnurBirgisdottir_BS_lokaverk.pdf | 649.26 kB | Open | Heildartexti | View/Open |
Note: Afritun er óheimil nema með leyfi höfundar.