is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Rit starfsmanna >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/20631

Titill: 
  • Hversu sýnilegt er “Icelandic Agricultural Sciences” í alþjóðlegum vefsetrum?
Útgáfa: 
  • 2014
Útdráttur: 
  • Alþjóðlega vísindaritið Icelandic Agricultural Sciences (IAS) birtir greinar um hagnýt og fræðileg efni í náttúruvísindum. Tímaritið er í prentaðri útgáfu og í opnum rafrænum aðgangi. Greinar í IAS koma fram í ýmsum alþjóðlegum vefsetrum. Leit var framkvæmd í vefsetrum Web of Science og Scopus þann 21. nóvember 2014 til að kanna hversu sýnilegt IAS er. Alls voru 42 IAS greinar (2009-2013) í Thomson gagnagrunni og 36 (2010-2013) í Scopus gagnagrunni, sem eru allar greinar sem komu út í IAS á þessu árabili. Vitnað hefur verið í þessar 42 og 36 greinar 90 og 70 sinnum, að meðaltali 2,1 og 1,9 tilvitnanir í hverja grein. Matsstuðull (e. Impact Factor) er nú 0,071. SJR (SCImago Journal Rank) er 0,211 og SNIP (Source Normalized Impact per Paper) er 0,213. Hirsch-index mælist fimm. Sú grein sem oftast var vitnað í fjallar um öskufall og áfok. Web of Science vefsetrið flokkar greinarnar sem vitna í IAS í 33 svið og Scopus vefsetrið í 18 svið. Höfundar að greinunum sem vitna í IAS eru frá 128 stofnunum og háskólum víðs vegar í heiminum, í fimm heimsálfum og 33 löndum. Vefsetursgreiningin á IAS endurspeglar árangursríkt gæðastarf tímaritsins, fjölbreytt fræðasvið hagnýtra náttúrufræða og gefandi alþjóðlegt samstarf. Árangur útgáfustarfsins er góður og IAS er vel sýnilegt meðal vísindarita sem það er sett í flokk með.

Birtist í: 
  • Skrína 2014, 1:3
ISSN: 
  • 2298-4925
Samþykkt: 
  • 23.2.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/20631


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
03-2014_sigurdur_ingvarsson_ofl.pdf388.04 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna