Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5583
Aðalmarkmið verkefnisins var að rannsaka samsetningu metoxýleraðra alkýlglýseróla sem finnast í hákarlalýsi. Einangrun metoxýleruðu alkýlglýserólanna var í þremur meginskrefum. Fyrsta skrefið fól í sér metanólrof lýsisins sem leiddi til myndunar metýlestera fitusýranna og 1-O-alkýlglýseróla. Í öðru skrefinu var blandan sett á kísilgelssúlu þar sem sýni með metoxýleruðum og venjulegum alkýlglýserólum var safnað saman. Í þriðja skrefinu var sýninu komið fyrir á prep. TLC-plötu þar sem metoxýleruðu alkýlglýserólin voru einangruð. Greining á hreinleika efnisins var gerð með 1H-NMR-mælingu en greining á samsetningu metoxýleruðu eterlípíðanna í lýsinu með HPLC-MS-mælingum.
Ennfremur fól verkefnið í sér greiningu á fitusýrusamsetningu hreins hákarlalýsis. Lýsinu var komið fyrir á prep. TLC-plötu og tvö lög aðgreind, annað með tríasýlglýserólum (TAG) og hitt með diasýlglýseróleterum (DAGE). Hvort um sig var sett í 1H-NMR greiningu og GLC-greiningu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Einangrun og greining 2-metoxýleraðra alkýlglýseróla í hákarlalýsi.pdf | 913.56 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |