is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2114

Titill: 
  • Læknar eru líka fólk ... Vinnuskipulag og starfslíðan lækna á þremur sjúkrahúsum í þremur löndum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi rannsókn fæst við að skoðaða ákveðna þættir í vinnuskipulagi og líðan lækna sem starfa á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Reykjavík, St. Olavs Hospital í Þrándheimi og Karolinska Universitetssjukhuset í Stokkhólmi. Rannsóknin er unnin upp úr könnun sem gekk undir nafninu HOUPE (Health and Organisation among University Physicians in four European countries). Spurningarlistar voru sendir til starfandi lækna á fjórum sjúkrahúsum í fjórum löndum. Í rannsóknarverkefni þessu er aðeins unnið með hluta af gögnunum og skoðuð staða lækna á þremur sjúkrahúsum í þremur löndum. Í niðurstöðum kemur fram munur á milli spítalanna bæði hvað varðar vinnuskipulagsþætti eins og hlutverkaárekstra, sjálfræði í starfi, stuðning í starfsumhverfinu og frá yfirmönnum. Einnig kemur fram marktækur munur á milli spítalanna þegar litið er á líðan, örmögnun, starfsfirringu, einelti og gerendur eineltis. Í lokin er litið á alla læknana sem einn heildarhóp og skoðuð tengsl á milli vinnuskipulagsbreyta og starfslíðunar, sem eru fjórir fyrrnefndir þættir. Í öllum tilfellum koma fram marktæk tengsl á milli þessara breyta sem bendir til að vinnuskipulag hafi áhrif á starfsliðan lækna.

Samþykkt: 
  • 1.4.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2114


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Dagbjort_L_Kjartansdottir_fixed.pdf2.17 MBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
Dagbjort_L_Kjartansdottir_forsida_fixed.pdf13.78 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna