Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/37744
Í þessari ritgerð er fjallað um áreiðanleikakannanir og áhrif þeirra á aðgæsluskyldu kaupanda, þegar kaup fara fram eftir eiginlegar samingaviðræður. Ekki er fjallað um þau tilvik þegar eiginlegar samningaviðræður eiga ekki stað, s.s. almenn hlutabréfa útboð, nema sérstakt tilefni gefist til samanburðar. Í öðrum kafla ritgerðarinnar er farið almennt yfir gallahugtak kröfuréttar. Í þriðja kafla er síðan rakið hugtakið aðgæsluskylda kaupanda og inntak þess í lögfræðinni. Í fjórða kafla er sjónum vikið að áreiðanleikakönnunum. Er þar farið yfir tilgang þeirra, lagalega stöðu, hver skuli hafa frumkvæðið að gerð rannsóknar og loks áhrif á aðgæsluskyldu kaupanda. Í 5. kafla ritgerðarinnar er stiklað á stóru um sérstök áhrif tómlætis í verðbréfaviðskiptum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-Ritgerð Teitur Snær Tryggvason.pdf | 391.44 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
skemman- yfirlysing um meðferð lokaverkefna.PDF | 25.55 kB | Lokaður | Yfirlýsing |