Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/15795
Markmið þessa verkefnis var að rannsaka áhrif notkunar á tvíátta skeggsaumi í kviðsjáraðgerðum kvenna. Höfundur var fyrstur til að nota þessa tegund seymis í kviðsjáraðgerðum árið 2008 og hefur síðan rannsakað áhrif þess á skurðtíma, mögulega fylgikvilla, samvaxtamyndun og gróningu sára.
Ritgerðin samanstendur af sex greinum sem hafa verið birtar í ritrýndum tímaritum á síðastliðnum fimm árum. Niðurstöður þessara rannsókna leiddi í ljós að notkun á tvíátta skeggsaumi styttir aðgerðartíma marktækt án þess að auka tíðni fylgikvilla. Samvaxtamyndun og gróning sára er einnig sambærileg við notkun á hefðbundu seymi.
Tvíátta skeggsaumur virðist því öruggur og auðveldur í notkun í kviðsjáraðgerðum í kvenna. Notkun þessa seymis hefur aukist jafnt og þétt og er nú orðin hluti af staðalmeðferð á stofnunum víðs vegar um heim.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
PhD thesis_FINAL.pdf | 4.26 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |