is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/30598

Titill: 
  • Tjónagreining á brúnni yfir Steinavötn í Suðursveit
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Á síðustu árum hefur tjónum á brúarmannvirkjum fjölgað á heimsvísu vegna skorts á eftirliti og nauðsynlegu viðhaldi sem og vegna aukningar á náttúruhamförum og aftakaatburðum. Vatnavextir í ám á Suðurlandi eru tíðir og geta orðið vegna aftakaúrkomu, hlýindakafla að vetri með leysingum, og vegna jökulhlaupa af völdum jarðhitavirkni eða eldgoss undir jökli. Þessir atburðir eru oftast handahófskenndir. Það getur því reynst erfitt að taka að fullu tillit til þessara atburða við hönnun brúa og annarra mannvirkja. Þetta verkefni fjallar um að skrásetja og greina tjón á brúnni yfir Steinavötn í Suðursveit sem eyðilagðist í flóðum haustið 2017. Áin gróf undan millistöpli sem seig við það og skemmdi yfirbyggingu. Brúin var í kjölfarið dæmd ónýt og bráðabirgðabrú byggð í staðinn. Í verkefninu var bakgrunnur stauraprófa á Íslandi kannaður. Gerður var samanburður á niðurstöðum eldri timburstauraprófana í nánd við Steinavötn, við stöðufræðilega útreikninga. Allir brúarstöplar brúarinnar yfir Steinavötn voru grundaðir á timburstaura og var burðarþol þeirra reiknað. Til þess að líkja við sigi millistöpuls var reiknað burðarþol hans sem fall af skolunardýpt með aðferð Meyerhof. Samkvæmt útreikningum þá bendir til þess að skolast hafi undan millistöpli allt frá 4,25 m til 4,75 m sem leiddi til sigs. Í þessu verkefni var einnig gert líkan af brúnni með forritinu SAP2000 og reiknaðir voru helstu sniðkraftar. Vettvangsferð Vegagerðarinnar og prófanir gáfu til kynna að flotliður hefði myndast við ásetur millistöpla. Útreikningar styðja við þá kenningu en reiknað beygjuvægi, sem myndaðist vegna eiginþyngdar og sigs millistöpuls, var hærra en sjálft vægisþol brúarinnar við ásetur millistöpla sitthvorum megin við hann.

Styrktaraðili: 
  • Vegagerðin
Samþykkt: 
  • 1.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/30598


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Yfirlýsing um meðferð verkefnis.pdf321.13 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Tjónagreining á brúnni yfir Steinavötn í Suðursveit.pdf6.92 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna