Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/20815
Nokkur ábendingarfornöfn í íslensku geta verið notuð bæði í ritmáli og talmáli í þeim forsetningarliðum sem innihalda fallsetningar, spurnarsetningar eða nafnháttarsambönd sem fylliliði. Slík fornöfn geta þó horfið án þess að trufla réttmæli í setningum: þær halda í rauninni áfram að vera málfræðilega réttar.
Hlutverk þessarar ritgerðar er það að greina notkun þeirra til þess að útskýra á hvaða hátt málhafar velja að nota fornafn eða að sleppa því í þess konar forsetningarliðum.
Í ritgerðinni er fyrirbærið athugað í rannsóknarverkefni frá setningarlegu og orðræðulegu sjónarhorni. Verkefnið felst í því að greina þau atvik sem koma fram í nokkrum upptökum frá ríkisútvarpsstöðinni Rás 1. Hádegisfréttir hafa verið valdar sem efniviður af því að ritmál í upplesnum fréttum og talmál skiptast oft á.
Reynt var að finna rökræna útskýringu í gögnum fyrir þeim tilhneigingum sem virðast koma í ljós í upptökunum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
hádegisfréttir 09-01-2015.mp3 | 23.28 MB | Opinn | Audio | MPEG Audio | Skoða/Opna |
hádegisfréttir 15-01-2015.mp3 | 22.72 MB | Opinn | Audio | MPEG Audio | Skoða/Opna |
hádegisfréttir 01-02-2015.mp3 | 18.77 MB | Opinn | Audio | MPEG Audio | Skoða/Opna |
hádegisfréttir 21-02-2015.mp3 | 20.08 MB | Opinn | Audio | MPEG Audio | Skoða/Opna |
BA-ritgerð_Mirko_Garofalo.pdf | 372.49 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |