is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/20841

Titill: 
  • Titill er á ensku Pharmacological study of the effect of placental protein 13 (PP-13) in non-pregnant rats
  • Lyfjafræðileg rannsókn á áhrifum fylgjupróteins 13 (PP-13) í óþunguðum rottum
Námsstig: 
  • Meistara
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Meðgöngueitrun er meðgöngu tengdur sjúkdómur þar sem klínísk einkenni koma vanalega fram eftir fyrstu 20 vikur meðgöngu. Sjúkdómurinn er talin hrjá að minnsta kosti 2-8% barnshafandi kvenna og er ein algengasta ástæða mæðradauða á heimsvísu. Galektín-13 eða PP-13 er prótein sem lofar góðu sem mögulegt greiningarmerki fyrir meðgöngueitrun. Hlutverk PP-13 á meðgöngu er enn ekki skilið að fullu en mikil lækkun á þéttni PP-13 í blóði móður á fyrsta þriðjungi meðgöngu hefur verið tengd við þróun meðgöngueitrunar seinna á meðgöngunni. Kenning okkar er sú að PP-13 hafi áhrif á æðakerfi í legi og blóðþrýsting í þunguðum konum og spili þar með mikilvægt hlutverk í meðgöngueitrun. Hlutverk þessa verkefnis er að reyna að öðlast betri skilning á hegðun PP-13 á meðgöngu með því að skoða in vivo hegðun á hreinu nýmynduðu/raðbrigði PP-13 (rPP-13) og histidine merktu PP-13 (PP-13 His-Tag) í 18 óþunguðum kvenrottum.
    Markmið: Aðalmarkmið þessa verkefnis var að mæla blóðþéttni PP-13 í sermi óþungaðra kvenrotta eftir ígræðslu á ALZET hæglosandi osmótískum pumpum sem losa próteinið á stöðugum hraða út í blóðrás dýranna í 7 daga. Einnig var markmið að skoða áhrif rPP-13 og PP-13 His-Tag á æðakerfið í legi rotta eftir samfellda gjöf PP-13 í 7 daga í óþunguðum kvenrottum.
    Aðferðir: ALZET osmótískar pumpur voru fylltar og græddar með skurðaðgerð undir húð á baki á 18 kvenkyns Sprague-Dawley’s rottum. Þegar búið var að koma pumpunum fyrir losuðu þær innihaldið, á stöðugum hraða, staðbundið undir húð samfellt í 7 daga. Rottunum var skipt í þrjá hópa, merktir I-III, sem hver innihélt 6 rottur eftir því hvaða meðhöndlun þær fengu. Öll dýr voru aflífuð og krufin á ellefta degi rannsóknarinnar ásamt því að valin líffæri voru fjarlægð og ljósmyndir teknar af hverju legi og æðakerfi þess.
    Niðurstöður: Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að PP-13 hafi æðavíkkandi áhrif í legi óþungaðra rotta ásamt því að auka æðanýmyndun, þó svo að niðustöðurnar næðu ekki alltaf tölfræðilega marktækum mun.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: Pre-eclampsia (PE) is a human pregnancy related disorder where the onset of clinical symptoms usually occurs after the 20th week of gestation. This disorder is estimated to affect at least 2-8% of all pregnancies and it’s one of the most common reason for maternal mortality worldwide. Galectin 13 or PP-13 is a protein that is one of the promissing biomarkers for predicting PE. The exact role of PP-13 during pregnancy is not yet fully understood but reduced levels of maternal serum PP-13 during the first trimester of pregnancy have been related to the development of PE later during pregnancy. It is our hypothesis that PP-13 has effects on the uterine vasculature and blood pressure in pregnant women, therefore playing a vital role in PE. Attempting to understand the role of PP-13 during pregnancy better, the in vivo behavior of histidine-tagged PP-13 (PP-13 His-Tag) and recombinant wild-type PP-13 (rPP-13) was examined in 18 non-pregnant female rats.
    Objectives: The primary objectives of this project was to measure PP-13 levels in non-pregnant rat’s serum after an insertion of a slow release ALZET osmotic pumps that release the protein at a continuous rate into the blood circulation for 7 days. Also, to evaluate the effects of PP-13 His-Tag and rPP-13 on the uterine vasculature in non-pregnant rats following a continuous administration over 7 days period.
    Methods: ALZET osmotic pumps were loaded and surgically inserted subcutaneously to the back of 18 female Sprague-Dawley’s rats. Once implanted, the content of the pumps was delivered at a continuous rate, into the local subcutaneous space, over a 7 days period. The rats were divided into three groups numbered I-III, each containing 6 animals, depending on the treatment they received. All animals were sacrificed and autopsied at the 11th day of the research, as well as selected organs were harvested and each uterine and its vascularization photographed.
    Results: The results of this project strongly suggest that PP-13 might have vasodilating effect in the uterine of non-pregnant rats, as well as enhancing angiogenesis, although the results did not always show a statistically significant difference.

Samþykkt: 
  • 29.4.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/20841


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MargrétSoffíaRunólfsdóttir.pdf2,49 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna