Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/21132
Markmið ritgerðarinnar er tvíþætt. Annars vegar að fá vísbendingu um lesskilning nemanda og hvernig hægt er að bregðast við og auka orðaforða og lesskilning í heimilisfræðikennslu, hugmyndir um kennsluaðferðir og leiki sem hægt er að nota. Hins vegar að skoða hvernig uppskriftir hafa breyst. Helga Sigurðardóttir hafði mikil áhrif á mótun íslenskra matarhefða um miðja 20. öld. Uppskriftir hennar eru bornar saman við nýlegri bækur og uppskriftablogg. Á netinu er reynt að grípa lesandann með sterkum lýsingarorðum. Í ritgerðinni er listi yfir hluta af fjölskrúðugu orðavali sem þar er að finna. Breytt samfélag kallar á breytingar á tungumálinu, orð hverfa og önnur koma inn í málið. Með því að lesa gamlar og nýjar uppskriftabækur og uppskriftablogg er kannað hvaða orð þetta eru.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Matur og málfar loka 14.1.pdf | 577.22 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |