Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/21219
Verkefni þetta er 14 ECTS eininga lokaverkefni til BA- gráðu í uppeldis- og menntunarfræði. Um er að ræða fræðslubækling fyrir foreldra um tengslauppeldi og greinargerð með bæklingnum. Hugmyndin er að foreldrar geti leitað sér upplýsinga um tengslauppeldi á skýran og einfaldan hátt og finni sjálfsöryggi og trú til að fylgja eigin hjarta í uppeldi barna sinna. Í greinargerðinni má finna fræðilega umfjöllun sem skýrir að hluta það ferli sem fært hefur foreldra frá náttúrulegu eðli í uppeldi barna og upphaf rannsókna og umræðu um tengsl og tengslavænt uppeldi. Sem og líffræðilega þætti tengslamyndunar ungbarna og foreldra og mikilvægi góðra tengsla fyrir þroska barna. Bæklingurinn var unninn í Microsoft Publisher og er bæði stafrænn og prentvænn. Ég tel og vona að bæklingur þessi muni gagnast áttavilltum og ringluðum foreldrum sem langar að hlusta á eigið hjarta í stað misvísandi uppeldisráða sem berast úr öllum áttum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Tengslauppeldi fyrir íslenska foreldra.pdf | 656,49 kB | Opinn | Fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
Tengslauppeldi fyrir íslenska foreldra - bæklingur.pdf | 3,27 MB | Opinn | Skoða/Opna |