Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/21268
Í ritgerðinni verður fjallað um félagslega virkni aldraðra og hvernig hún hefur áhrif á lífsgæði þeirra. Markmið er að skoða hvað félagsleg virkni er og hvaða þættir það eru sem auka lífsgæði aldraðra. Öldruðum fjölgar, þar sem lífslíkur hafa aukist með framþróun í læknavísindum og bættum aðstæðum. Virkni og þátttaka aldraðra í samfélaginu er mikilvæg bæði fyrir þá sem og fyrir samfélagið. Eldra fólk er betur á sig komið andlega og líkamlega í dag en áður fyrr. Aldraðir vilja vera virkir í samfélaginu og skila framlagi til samfélagsins með aukinni þátttöku í félagstörfum og atvinnulífinu. Það þarf að taka tillit til þarfa og langana hvers og eins þar sem eldri borgarar eru ekki allir steyptir í sama mót. Það ber að virða sjálfsákvörðunarrétt þeirra en jafnframt þarf að upplýsa þá um hvaða valkostir eru í boði. Það kom í ljós að aukin virkni stuðlar að vellíðan og lífsánægju og því virkara sem fólk er því meiri lífsgleði upplifir það. Með því að vera félagslega virkur í samfélaginu, hvort sem það er í tómstundum, gæta barnabarna eða á vinnumarkaði þá hafa aldraðir hlutverki að gegna og skila sínu til samfélagsins. Á þann hátt upplifa aldraðir að félagsleg virkni þeirra auki lífsgæðin.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð_Sigurborg Íris Vilhjálmsdóttir.pdf | 372,42 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |