Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/21303
Markmið reikningshalds og skattheimtu eru ekki þau sömu. Hin mismunandi markmið valda því að meðferð ýmissa liða er ólík í bókhaldi félaga og við framtal þeirra til skatts. Í ritgerðinni er farið yfir helsta muninn á reglum reikningshaldsins annars vegar og laga um tekjuskatt hins vegar og áhrif hans á reikningshald félaga dregið fram. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða en farið er yfir mismunandi reglur um viðskiptakröfur, varanlega rekstrarfjármuni, birgðir, hlutabréfaeign, viðskiptavild og að lokum nokkrar sérreglur úr lögum um tekjuskatt. Til viðbótar er fjallað um þær færslur sem færa þarf vegna þessa í bækur félaga.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Guðmundur_G._Hagalín_BS_2015.pdf | 561.17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |