Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/21375
Þetta verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2015. Í verkefninu er fjallað um einelti og neteinelti og hvað það er sem liggur að baki hugtakinu. Gerð er grein fyrir einkennum gerenda og þolenda eineltis og ástæðum eineltis. Hlutverk skólans og kennara verður skoðað og hvaða úrræði þeir hafa ef upp koma eineltismál í skólanum eða bekknum. Farið verður yfir hlutverk foreldra ef barn þeirra veður fyrir einelti og hvernig foreldrar geta áttað sig á því ef einelti á sér stað. Einnig verður skoðað hvað fordómar og staðalímyndir eru því oft má rekja einelti til þess að einstaklingur sker sig á einhvern hátt úr hópnum. Þá verður gerð grein fyrir eineltisstefnu Dan Olweus en hún hefur skilað góðum árangri í baráttunni við einelti í grunnskólum. Þar er notaður eineltishringur og með honum geta nemendur staðsett sig með tilliti til þess hvort þeir séu gerendur eða þolendur eineltis. Með því að fjalla um einelti og opna umræðuna getum við frætt börn og unglinga um afleiðingar þess að leggja aðra í einelti, kennt þeim að slíkt er ekki ásættanlegt. Mjög mikilvægt er að allir vinni saman í baráttunni við einelti því með samvinnu gengur okkur betur. Engir tveir eru eins, fögnum fjölbreytileikanum.
This assignment is written as a thesis for an B.Ed.-degree for the teachers program at the university of Akureyri in the spring of 2015. In this thesis I will be focusing on the subject of bullying and cyberbullying and what lies behind this concept. It lists the characteristics of the perpetrators and the reason behind bullying, the schools and the teachers role in the matter when faced with bullying at the schools or at class. It also lists the role of the parents if it's child suffers from bullying and how to spot it out if you suspect your child is being bullied. It also lists what prejudice and stereotypes are, since you can often link the context of standing out from the crowd to bullying. We will explain the bullying policy of Dan Olweus for it has been submitted successfully in the fight against bullying in Primary Schools. The policy focuses on an "bullying ring" and with it students can position them self with respect to being perpetrators or victims of bullying. By dealing with bullying and opening up the discussion about bullying we can teach children and teenagers about the consequences of picking on each other and to stop bullying. It is very important that every one works together as a team in the battle to stop bullying, because with cooperation comes success. No two are alike, embrace diversity.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Ragnheidur-Thelma-.pdf | 659 kB | Lokaður til...06.04.2134 | Heildartexti |