Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/21503
Í ritgerð þessari er sjónum beint að nemendum með sértæka námsörðugleika, og einnig að leikrænni tjáningu í námi. Stuðst er að mestu við heimildir sem aflað var úr bókum, fræðiritum og rannsóknum á viðfangsefninu. Lagt var upp með rannsóknarspurningarnar: Hvert er gildi leikrænnar tjáningar í kennslu? og Hvaða áhrif hefur leikræn tjáning á nemendur með námsörðugleika? Sértækir námsörðugleikar eru sagðir orsakast af taugafræðilegum og líffræðilegum orsökum. Nemendur með sértæka námsörðugleika eiga í erfiðleikum með einhverja af grunnþáttum náms, lestur, ritun og stærðfræði. Þá hættir þeim til að sýna einkenni þunglyndis, hafa lágt sjálfsmat og skort á félagsfærni. Með æfingum leikrænnar tjáningar sem kennsluaðferð gefst færi á að dýpka skilning nemenda á námsefni. Þar er meðal annars byggt á mikilli samvinnu sem eflir nemendur í samskiptum. Rannsóknir hafa bent til þess að notkun leikrænnar tjáningar í kennslu hafi góð áhrif á nemendur með sértæka námsörðugleika. Sökum fátæktar á sviði íslenskra rannsókna á gildi leikrænnar tjáningar fyrir nemendur með námsörðugleika væri áhugavert að gera frekari rannsóknir á því efni í íslenskum skólum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BA_Lokaverkefni_Steinunn_Bára_Ægisdóttir.pdf | 796.79 kB | Open | View/Open |