is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/21581

Titill: 
  • Fóðurkerfi fyrir fiskeldi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessa verkefnis er að komast að því hvort möguleiki sé að bæta úr nákvæmni fóðurkerfa fyrir laxeldi með notkun kraftnema. Hannað verður forrit og stjórnbúnaður sem getur tekist á við rannsókn á mismuni milli kerfa sem gefa eftir afkastamælingu á tímaeiningu annarsvegar og vigtunar á hverri gjöf hins vegar. Iðntölva verður notuð til stjórnunar á búnaðinum og verður forritið hannað á þann veg að möguleiki sé að nýta það til framleiðslu á búnaðinum ef niðurstöður gefa tilefni til. Þetta á meðal annars við um gagnasöfnun á magni gjafa hverju sinni og geymslu á þeim. Útfærsla á fóðurbúnaði fyrir laxaseiði verður einnig gerð skil. Um er að ræða þekkta aðferð sem er síló og snigilfærsla á fóðri út í ker. Þessi hönnun verður betrumbætt hvað varðar nákvæmni með því að koma fyrir kraftnemum til vigtunar. Útfærsla á búnaði verður teiknuð upp og burður ásamt afl-útreikningum verður reiknaður. Kostnaður við helstu hliðarkerfi verður skoðaður og mat lagt á hvaða kerfi koma best út við frumhönnun með búnaði. Verkefnið er unnið í samstarfi við fyrirtækið Eldislausnir ehf.

Styrktaraðili: 
  • Eldislausnir ehf
Samþykkt: 
  • 20.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21581


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
bs-lokaritgerð-31.1-utgafa-sverrirhh.pdf2,64 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna