is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Hólum > Ferðamáladeild > BA verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21634

Titill: 
  • Heilsu- og vellíðunarferðaþjónusta, gjaldeyrir eða glópagull? : dæmi frá Náttúruböðum í Borgarfirði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Áhugi virðist vera fyrir að nýta jarðhita til uppbyggingar heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu á Íslandi. Fáir frumkvöðlar virðast hinsvegar leggja út á þá braut, þrátt fyrir að sóknarfærin virðist liggja fyrir. Verkefni þetta snýr að því kanna hvað veldur því að frumkvöðlar eiga í erfiðleikum með að koma á fót fyrirtækjum í heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu byggðum á vatni og jarðvarma. Til þess að kanna það var tilviksrannsókn gerð á dæmi að stofnun náttúrulegra jarðhitabaða í Borgarfirði þar sem rannsóknarspurning var sett fram ásamt undirspurningum. Rýnt er í hvaða auðlindir frumkvöðlar geta virkjað til að koma hugmynd af stað og hvernig má nálgast þær. Til að leita svara við rannsóknarspurningum var stuðst við fyrirliggjandi gögn ásamt öflun frumgagna. Viðtal var tekið við frumkvöðul að náttúrulegum jarðböðum í Borgarfirði, ásamt viðtali við íbúa í nágrenni til að komast að viðhorfum og væntum áhrifum af framkvæmdinni. Viðtal var einnig tekið við fulltrúa sveitarstjórnar Borgarbyggðar til að kanna aðkomu stjórnvalda.

    Niðurstöður benda til mikilvægis félags- og mannauðs við mótun og framkvæmd nýrra verkefna á sviði heilsu- og vellíðunarferðaþjónustu, einkum þegar nýta skal auðlindir samfélags og þá sérstaklega menningararf. Jafnframt má greina hindranir er snúa að fjármögnun og framkvæmt stefnumótunnar stjórnvalda í ferðaþjónustu. Bjartsýni virðist hinvegar vera til staðar fyrir hönd verkefnisins um Náttúruböð í Borgarfirði á þessu stigi og að það gæti orðið góð viðbót við núverandi framboð ferðaþjónustu á svæðinu.

  • Útdráttur er á ensku

    In Iceland, it would appear that there is a great interest for using geothermal water in the development of the country as a health and wellness destination. The field seems to be a lucrative one with many opportunities for entrepreneurs to usurp, however, very few seem to dare venture into it. This thesis aims to examine the problems these entrepreneurs face in establishing businesses in the health-and wellness sector with water and geothermal energy as a primary resource. A research question with relevant sub-questions was formed around a case involving an attempt to establish natural geothermal bathing facilities in the rural area of Borgarfjordur in Iceland. This case study endeavours to establish which resources/capitals entrepreneurs need to use in order to bring their ideas into fruition and what measures can be used access those. A secondary data source was used to address the research questions, along with primary data in the form of interviews with the entrepreneur and residents in the nearby area. An additional interview was also made with a member of the municipal authorities of Borgarbyggd to address the involvement of administrative officials in the proposal.
    Results indicate the importance of social- and human capital in the implementation of new projects in the field of health and wellness tourism, especially where the use of community capital and heritage as a source are intended. Evidence of obstacles concerning project funding and lack of active governmental policies in the field of tourism are also noticeable. Currently however, there is certain optimism evident towards the geothermal bathing facilities at Borgarfjordur Nature baths and it may well become a favourable addition to the tourism services offered in the area.

Samþykkt: 
  • 26.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21634


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð Berglind Ragnarsdóttir.pdf1.41 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna