Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/21723
Að komast í burtu frá amstri hversdagsins og komast í tæri við ósnortina náttúru er eftisóknarverð leið til þess að hlaða batteríin og finna innri ró. Í þessari ritgerð er ljósinu beint að húsbílaferðalögum. Upplifanir ferðalanga á umhverfi og hvernig húsbílaeigendur búa sér til heimili að heiman eru aðalumfjöllunarefni ritgerðarinnar. Tvö viðtöl voru tekin við húsbílaeigendur auk þess að spurningalisti var sendur út á Félag Húsbílaeigenda og ljósmyndum var safnað. Í ritgerðinni er reynt að komast að því hvernig fólk kemur sér fyrir á nýjum stað og sömuleiðis hvernig einkarými myndast á milli húsbíla á tjaldsvæðum. Einnig eru þeir þættir innan veggja heimilisins skoðaðir sem framkalla eftirsóknarverða heimatilfinningu í húsbílum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að húsbílaeigendur leggja töluvert uppúr því að hafa húsbílinn huggulegan auk þess sem að fólk leitast eftir því að vera í nálægð ósnortinnar náttúru í ferðalaginu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Anna-BA-ritgerd-skemman-rett-eintak.pdf | 36,13 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |