is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Rannsóknarverkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21845

Titill: 
  • Vetrarfæða tófu (Vulpes lagopus) á Íslandi: Samanburður á vetrarfæðu tófu á milli landshluta
Útdráttur: 
  • Á Íslandi gegnir tófan (Vulpes lagopus) ákveðinni sérstöðu þar sem hún er erfðafræðilega einangruð og lífshættir hennar eru öðruvísi en á öðrum stöðum þar sem hana er að finna. Þetta skýrist af fæðuframboði og fæðuvali sem endurspeglast í lægri og stöðugri frjósemi en á öðrum svæðum. Samanburður var gerður á vetrarfæðu tófa á milli Austurlands og Vesturlands með því að skoða magainnihald. Landsvæðin eru ólík hvað varðar búsvæði refa en á vesturhluta landsins eru strandsvæði algengari en austanlands. Í heildina var munur á tíðni fæðugerða á milli landshluta (P-gildi = 0.003). Þegar einstaka fæðugerðir voru skoðaðar var þó ekki mikill munur. Á Vesturlandi var tíðni og magn sjófugla, fiska og hryggleysingja í magainnihaldi meira sem bendir til þess að tófur þaðan nýti frekar fæðu af hafrænum uppruna. Tíðni hryggleysingja var einnig hærri á Vesturlandi. Stærri spendýr og fuglar voru mikilvægur hluti af fæðu tófa á báðum landshlutum. Eggjaleifar fundust eingöngu á Austurlandi en þó sjaldan og í litlu magni. Fæðuval tófu á Íslandi þarf þarf þó að skoða betur með fleiri sýnum og með því að bera saman fleiri svæði og árstíðir til þess að bæta við þekkingu á vistfræði þessa tækifærissinaða rándýrs.

Samþykkt: 
  • 2.6.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21845


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Snæfríður Pétursdóttir B.S. - Vetrarfæða tófu á Íslandi.pdf417.94 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna