Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5360
Menn, líkt og önnur spendýr, sýna daglegar sveiflur í virkni og lífeðlisfræðilegum ferlum. Þessar dægursveiflur sýna endurtekningu á u.þ.b. 24 klst. fresti en með aldrinum er talið að þær flýti sér. Í þessari rannsókn voru bornar saman dægursveiflur kvenna á tveimur aldursskeiðum, annars vegar á þrítugsaldri og hins vegar á sextugsaldri. Mælingar voru teknar með virknimælum í 7 daga við sumarsólstöður og vetrarsólstöður og athugað hvort munur mældist milli árstíða og á milli vikudaga. Auk þess voru þátttakendur beðnir um að fylla út spurningalista á báðum árstíðum. Niðurstöður gefa vísbendingu um að með aldri breytast dægursveiflur kvenna. Konur á miðjum aldri sýndu tilhneigingu til þess að fara fyrr að sofa og vakna fyrr en yngri konur, sem er merki um flýta dægursveiflu. Á milli árstíða reyndust dægursveiflur ekki breytast en hins vegar sást greinilegur munur á virkum dögum og helgardögum. Engin fylgni fékkst á milli hlutlægra og huglægra gagna við samanburð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Áhrif aldurs, árstíða og vikudaga á dægursveiflur kvenna..pdf | 580.79 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |